Góðan daginn! Hér koma fleiri myndir af heimsókn Árnans til Færeyja svo og nokkrar myndir af áhöfn við störf. Það er annars af okkur að frétta að loks sér nú hylla undir lok þessa leiðangurs en allar líkur benda til þess að skipið verði í Reykjavík n.k miðvikudag. Þessa stundina erum við hinsvegar stödd ca. 50 sjóm. út af Hornafirði.

Einn bátur, tveir bátur.....

Kaffihúsið þar sem við héldum okkur.

Sævar aðstoðarmatsv. og Indriði yfirvélstjóri fá sér smá öl. Færeyjingarnir eru eh að misskilja þetta með "einn íííískaldan á kanntinum" bjórinn var volgur og væminn hjá þeim, fussusvei....

Páll rannsóknam, Gerður rannsóknam, Hildur rannsóknam, Agnar rannsóknam, Sigurþór 1.vélstjóri, Guðmundur Ívar 2.vélstjóri og Heiðar háseti sátu í sólinni og nutu augnabliksins.



Þarna siglir ofurlítil dugga...

Jájá það var skellt sér í sund, Alice og Sævar í sjónum við Færeyjar.

Ekki slæmt :-) p.s. Sævar! maginn er alltaf dreginn inn fyrir myndatöku, manst það bara næst ;-)

Jæja komin heim aftur, Skrúður vinstra megin og Seley hægra megin á myndinni.

Vöðlavík.

Ca. 100 ára reynsla þarna samankomin ( ef ekki meira), kallarnir ganga frá flugdrekanum áður enn hann er hífður inn á tromlu. Frá vinstri, Bjarni bátsmaður, Þórhallur háseti og strandamaðurinn sterki Ívar Bjarnason netamaður.

Heiðar Fjalar Jónsson háseti og dr hook....

Og þarna erum við svo stödd þegar þetta er skrifað.
Skrifað af Indriði Hauksson